Borgarafélag Íslands
← Til baka í fréttir og greinar
Grein

Umsögn Um lagafrumvarp til breytinga á mannanafnalögum: 158. löggjafarþing 2026–2027. Þingskjal 301 — 274. mál.

Rökin sem mæla gegn frumvarpinu eru hins vegar nokkuð augljós hvort heldur er í almennu- eða lögfræðilegu tilliti. Afleiðingar frumvarpsins gætu orðið samfélagsleg skaðsemi verði það að lögum. Hóflega má halda því fram að röksemdir um að sakamenn eigi ekki að geta „falið sig á bak við nafnabreytingu“ séu ómálefnaleg og vond rök. Fjöldi sakamanna skipta um nafn til að draga úr athygli og líkum á árásum á heimili.

17. nóvember 2026
„Öll dýr eru jöfn, sum dýr eru jafnari en önnur“(Animal farm Orvell)! VILJUM VIÐ ÞAÐ?

Eru mannréttindi ekki fyrir alla?

Inngangur

Í stórum dráttum verður ekki annað séð en að lagafrumvarpið skorti stjórnskipulegt gildi. Sá „réttur annarra“ sem talað er um er ekki útskýrður eða skilgreindur og fer gegn undantekningarákvæði 3. mgr. 71. gr. stjórnarskrár, sbr. 9. gr. stjórnskipunarlaga nr. 97/1995. Undanþáguákvæðið um „brýna nauðsyn vegna réttinda annarra“ á við um þá sem eiga sannanlega réttindi sem ná inn á heimili og geta truflað einkalíf. Þar er einkum átt við börn og þá sem leita fullnustu á borð við aðför og nauðungarsölur. Þá eru hinir mikilvægu „almannahagsmunir“ ekki skilgreindir eða tíundaðir sem þó virðast gegna lykilhlutverki. Í frumvarpinu er heldur ekki sýnt fram á þá stjórnskipulegu heimild að þrengja jafnræði tiltekins hóps manna á grundvelli almannahagsmuna. Jafnræðisregla 65. gr. stjórnarskrár, sbr. 3. gr. stjórnskipunarlaga nr. 97/1995, inniheldur engar heimildir til slíks ólíkt 71. gr. Það eru hins vegar hinir augljósu almannahagsmunir að virða jafnræði allra undantekningalaust. Skerðingar á hinu fullkomna jafnræði byggjast almennt á mikilvægari mannréttindum. Sem dæmi má nefna sérfræðikröfur í heilbrigðismálum en þar vega réttindi sjúklinga skv. 1. mgr. 76. gr. stjórnarskrár þyngra. Það er jú krafa að sérfræðingur einn framkvæmi heilaskurð.

Rökstuðningur að baki frumvarpinu hangir í lausu lofti. Rökin sem mæla gegn frumvarpinu eru hins vegar nokkuð augljós hvort heldur er í almennu- eða lögfræðilegu tilliti. Afleiðingar frumvarpsins gætu orðið samfélagsleg skaðsemi verði það að lögum. Hóflega má halda því fram að röksemdir um að sakamenn eigi ekki að geta „falið sig á bak við nafnabreytingu“ séu ómálefnaleg og vond rök. Fjöldi sakamanna skipta um nafn til að draga úr athygli og líkum á árásum á heimili. Þá er það vel þekkt að fordómar tengdir nafni valda því að viðkomandi borgari fái ekki þá þjónustu, og njóti ekki borgaralegra réttinda, sem allir eiga rétt á án þess að fordómar ráði för. Þá eru það sýnilegir almannahagsmunir að almenningur eða einstaklingar brjóti ekki gegn viðkomandi sakamanni eins og gjarnan gerist. Frumvarpið getur, í eðli sínu, skapað afbrot, sem oft á tíðum eru húsbrot, sem varða þeirri lengd fangavistar sem höfundar frumvarpsins telja hæfilega. Það varðar mikilvæga almannahagsmuni að frumvarpið verði ekki samþykkt.

Þar að auki er um mannréttindamál að ræða og skerðingar á frelsisákvæðum stjórnarskrárinnar. Mannréttindakafli stjórnarskrárinnar var samþykktur af borgurum Íslands með stjórnskipunarlögum nr. 97/1995. Öll mannréttindaákvæðin hafa það eðli að vernda borgara gegn stjórnvöldum og fela í sér skyldur til stjórnvalda rétt eins og fyrirmæli atvinnurekanda til starfsmanna. Stjórnvöldum er ætlað að færa þessar skyldur sínar í lög en þau hafa ekki forræði á málinu að öðru leyti.

Rétt er að benda á það að frumvarpið skerðir mannréttindi annarra sem tengjast sakamanni eins og barna og aðstandenda.

Loks verður ekki annað séð en að frumvarpið vinni beinlínis gegn tilgangi og markmiðum laga nr. 15/2016 um fullnustu refsinga.

Jafnræðisregla 1. mgr. 65. gr. stjórnarskrár

Jafnræðisregla stjórnarskrárinnar hljóðar svo:

„ Allir skulu vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti.“

Ákvæðið er, eins og önnur mannréttindaákvæði, vörn borgara gagnvart yfirvöldum, þar á meðal Alþingi. Ákvæðið er í raun vörn sérhvers borgara gagnvart fordómum. Í því tilviki sem hér um ræðir skipta lokaorð málsgreinarinnar mestu máli, það er að segja „[...stöðu að öðru leyti].“ Mannréttindadómstóll Evrópu hefur í dómum sínum komist að því að staða frelsisviptra fellur undir hugtakið. Hið sama á við um sakamenn þá sem frumvarpinu er ætlað að ná til. Rök frumvarpsins er varða það að jafnræði sé bútað niður og sé þannig virt innan tiltekins hóps, hvað stöðu þeirra varðar, standast því ekki.

Í almennum athugasemdum við frumvarp að stjórnskipunarlögum nr. 97/1995 segir um jafnræði:

„Í 3. gr. frumvarpsins er gerð tillaga um nýja 65. gr. stjórnarskrárinnar. Í henni er sett fram almenn jafnræðisregla þar sem er kveðið á um að allir skuli vera jafnir fyrir lögunum. Þrátt fyrir að þessi regla hafi fram til þessa verið talin til óskráðra undirstöðuréttinda í íslenskri stjórnskipan hefur það ekki verið talið veita nægilega skýra vernd hvað varðar bann við mismunun.“

Þá segir í athugasemdum um mannréttindaákvæðið sjálft:

„[... Mikilvægi [jafnræðisreglunnar] felst ofar öllu í því að vera almenn leiðbeiningarregla um bann við mismunun sem ber ávallt að hafa að leiðarljósi. Það á ekki einvörðungu við í tengslum við lagasetningu, heldur einnig við skýringu laga, þar á meðal annarra stjórnarskrárbundinna mannréttindaákvæða. Jafnræðisreglan getur þó að sjálfsögðu haft bein og ótvíræð áhrif ef t.d. ákvæði í almennum lögum felur í sér mismunun sem brýtur í bága við regluna. Kann þá ákvæðinu að verða vikið til hliðar vegna hennar...]“

„[...Í 3. gr. frumvarpsins er gerð tillaga um að jafnræðisreglan fái verulega rýmra gildissvið en reglur á borð við [...] 14. gr. mannréttindasáttmála Evrópu því í reglu frumvarpsins er ekki aðeins skírskotað til þess að allir skuli njóta mannréttinda án mismununar heldur er henni ætlað að gilda á öllum sviðum löggjafar og veita öllum jafna lagavernd...]“

Friðhelgisákvæði 71. gr. stjórnarskrár

Ákvæði 71. gr. stjórnarskrár, sbr. 9. gr. stjórnskipunarlaga nr. 97/1995 hljóðar svo:

„Allir skulu njóta friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu.

Ekki má gera líkamsrannsókn eða leit á manni, leit í húsakynnum hans eða munum, nema samkvæmt dómsúrskurði eða sérstakri lagaheimild. Það sama á við um rannsókn á skjölum og póstsendingum, símtölum og öðrum fjarskiptum, svo og hvers konar sambærilega skerðingu á einkalífi manns.

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. má með sérstakri lagaheimild takmarka á annan hátt friðhelgi einkalífs, heimilis eða fjölskyldu ef brýna nauðsyn ber til vegna réttinda annarra.“

Í 3. mgr. ákvæðisins er fjallað um heimilar takmarkanir á friðhelgi ef brýna nauðsyn ber til vegna réttinda annarra. Ekki verður betur séð en að í frumvarpinu til lagabreytingar á mannanafnalögum sé vísað til þeirra réttinda annarra sem hér getur. Sú tilvísun verður þó ekki metin öðruvísi en að um stjórnskipulega lögvillu sé að ræða. Þær takmarkanir sem fjallað er um í 3. mgr. 71. gr. varða afskipti af heimili og fjölskyldulífi sérstaklega vegna réttinda barna. Þá er einnig átt við inngrip í friðhelgina vegna fullnustugerða á borð við aðför og nauðungarsölu. Hins vegar er ómögulegt að gera sér í hugarlund að skerða friðhelgi vegna ótilgreindra réttinda annarra. Af mikilli hófsemi má halda því fram að nafn borgara eða nafnabreyting geti alls ekki falið í sér brýna nauðsyn til inngrips í friðhelgi viðkomandi og hvað þá að nokkrir borgarar, tilgreindir eða ótilgreindir, geti átt ákvarðandi réttindi til nafna borgara landsins. Í athugasemdum við 9. gr. stjórnskipunarlaga nr. 97/1995, sem varð að 71. gr. stjórnarskrár segir um þetta:

„[...] Í friðhelgi einkalífsins felst fyrst og fremst réttur manns til að ráða yfir lífi sínu og líkama og til að njóta friðar um lífshætti sína og einkahagi. Jafnframt er litið svo á að tilfinningalíf og tilfinningasambönd við aðra njóti verndar samkvæmt ákvæðinu.

[...] Með því að setja fram beina reglu um friðhelgi einkalífsins í 1. mgr. 9. gr. frumvarpsins er gert ráð fyrir að skylda hvíli á ríkinu til að forðast afskipti af einkalífi manna og persónulegum högum. Þetta er þó ekki nægilegt til þess að menn fái í reynd notið friðhelgi einkalífs því hættan á að slík friðhelgi sé rofin stafar ekki eingöngu frá ríkinu, heldur einnig frá öðrum einstaklingum og einkaaðilum. Af þessum sökum felur krafan um friðhelgi einkalífs ekki eingöngu í sér að ríkið gangi ekki á þennan rétt, heldur einnig að því sé skylt að setja reglur í löggjöf til verndar einstaklingunum í innbyrðis samskiptum þeirra.

Og sérstaklega um undantekningartilvik í 3. mgr. 9. gr. stjórnarskrárinnar um takmarkanir á friðhelgi segir:

„[...] Í 3. mgr. 9. gr. frumvarpsins kemur fram að í undantekningartilvikum megi takmarka með sérstakri lagaheimild friðhelgi einkalífs, heimilis eða fjölskyldu ef það er nauðsynlegt vegna réttinda annarra. Tilgangurinn með þessari takmörkun beinist hvað helst að tilvikum þar sem afskipti af heimili og fjölskyldulífi eru nauðsynleg til að vernda hagsmuni barna. Þannig getur þörf fyrir að tryggja velferð barna kallað á ýmiss konar takmarkanir á réttindum skv. 1. mgr. 9. gr. frumvarpsins þar sem hagsmunir barna geta orðið þeim réttindum yfirsterkari. Er þetta einnig í samræmi við 3. mgr. 14. gr. frumvarpsins þar sem er kveðið á um að börnum skuli tryggð í lögum sú vernd og umönnun sem velferð þeirra krefst. Í ákvæðum barnalaga, nr. 20/1992, og laga um vernd barna og ungmenna, nr. 58/1992, eru reglur sem helgast af þessum markmiðum, en óhjákvæmilega geta afskipti, sem heimiluð eru með þessum lögum til að tryggja velferð barna, raskað heimilis- og fjölskyldulífi. Undir ákvæði 3. mgr. 9. gr. frumvarpsins falla einnig heimildir í löggjöf um fullnustugerðir, t.d. í tengslum við framkvæmd fjárnáms, nauðungarsölu eða gjaldþrotaskipta, en þessar aðgerðir geta leitt til röskunar á réttindunum sem talin eru í 1. mgr. greinarinnar...]“

Réttur annarra

Í frumvarpinu umrædda er vísað til réttar annarra. Engar vísbendingar er þó að finna um hverjir þessir aðrir séu eða hver þeirra réttur sé hvað varðar mannanöfn. Ritari er kannski ekki skarpasti hnífurinn í skúffunni, eins og barnabarn hans áttaði sig á, en það skýrir ekki hvers vegna hann er alveg grunlaus um hverjir það eru sem eiga réttinn, hver rétturinn sé og á hverju hann byggi. Eftir því sem ritari best veit þekkist ekkert lagaákvæði, hvorki í stjórnarskrá né almennum lögum, sem felur það í sér að einhver ótiltekinn eigi rétt á því að vita hvað næsti maður heitir frekar en hvernig hann er klipptur eða einkennir sig að öðru leyti. Af því leiðir að almennt eiga borgarar ekki rétt á slíku nema í þeim tilvikum sem viðkomandi nafn tengist stjórnskipan Íslands. Sú réttmæta vitneskja tengist því að borgarar, sem vinnuveitendur, skulu af augljósum ástæðum hafa upplýsingar um starfsmenn stjórnvalda, sem vinnuhjúa. Hvað varðar klippingu einstaklinga má í gamni og í alvöru vísa til þess að íbúar í Norður-Kóreu geta valið á milli nokkurra tiltekinna klippinga en annarra ekki. Áður en lengra er haldið með frumvarpið væri nær að átta sig á því, og skilgreina, hverskonar réttur það er sem aðrir kunna að eiga. Það má gera með því að fara yfir mannréttindakafla stjórnarskrárinnar þar sem réttindi borgara eru talin og skilgreind.

Almannahagsmunir

Almannahagsmunir á Íslandi eru oft á tíðum illa skilgreindir og hanga helst í lausu lofti til tilfinningalegs mats ósýnilegs hóps. Hinir sýnilegu og viðurkenndu almannahagsmunir í lýðræðissamfélagi eru þeir sem Bastían bæjarfógeti lýsti svo vel á sviði í Þjóðleikhúsinu á sínum tíma. Það er að segja að allt gangi sinn vana gang. Verkföll, mótmæli og hamfarir varða almannahagsmuni enda hikstar þá hið daglega almenna líf. Það eru engir sýnilegir almannahagsmunir í því hvaða nafn einstaklingur ber. Í frumvarpinu er vísað til almannahagsmuna án þess þó að skilgreina þá eða að gefa í skyn hverjir þeir séu. Hins vega má vera ljóst að frumvarpið er því marki brennt að einangra tiltekna borgara frá samfélagslegum gildum. Lýðveldisfyrirkomulagið grundvallast af þveröfugum þörfum. Að tengja borgara við lýðræðishugsjónir og að miða að þátttöku allra borgara í stað útilokunar. Dómstólar hafa í seinni tíð gert ríkari kröfur til löggjafans um að skilgreina með trúverðugum hætti þá almannahagsmuni sem geta þrengt mannréttindi borgara.

Markmið laga nr. 15/2016 um fullnustu refsinga

Varla þarf að efast um að frumvarp um breytingar á mannanafnalögum vinni gegn markmiðum laga nr. 15/2016 um fullnustu refsinga. Í 1. mgr. laganna segir um markmið þeirra:

„Markmið laga þessara er að fullnusta refsinga fari fram með öruggum og skilvirkum hætti og að sérstök og almenn varnaðaráhrif refsinga séu virk.

Markmið laga þessara er jafnframt að draga úr líkum á ítrekun brota ogstuðla að farsælli betrun og aðlögun dómþola að samfélaginu.“

Hvað frumvarpið að breytingum á mannanafnalögum varðar reynir á skaðsemi þess gagnvart fjórum af fimm markmiðum fullnustulaganna:

  1. Virkni sérstakra varnaðaráhrifa: Með því að taka af sakamönnum mannréttindi á borð við það að ráða nafni sínu aukast líkur á því að þeir séu ónáðaðir og verði jafnvel fyrir árásum. Þá er það þekkt, að fyrrverandi fangar, einkum í tilteknum brotaflokkum séu beittir ofbeldi. Þar við bætist ómöguleiki, í mörgum tilvikum, að fá vinnu og framfleyta sér og sínum. Af því leiðir óhjákvæmilega að viðkomandi er þvingaður í slæma félagslega stöðu en orsakasamhengi eru greinanleg á milli slíkrar stöðu og afbrota.
  2. Virkni almennra varnaðaráhrifa: Frumvarpið um breytingar á mannanafnalögum virðist miða við það að menn sem hafa fullnustað dóma sína verði áfram kenndir við afbrotið. Til eru hópar í samfélaginu sem nýta sér slíkar upplýsingar og, oft á tíðum, ofsækja sakamenn. Bæði líkamlega og á netsíðum. Nafnabreyting þjónar meðal annars þeim tilgangi að forðast árásir frá fólki og draga þannig úr auknum afbrotum og ofbeldi í samfélaginu. Frumvarpið er því skaðlegt hvað almenn varnaðaráhrif varðar að því leyti sem það hvetur til afbrota gagnvart sakamönnum og fjölskyldum þeirra.
  3. Betrun: Það er mikilvægt samfélagslegt markmið að stuðla að betrun. Hér á í raun hið sama við og hvað varðar sérstök varnaðaráhrif. Það að neita sakamönnum um að breyta nafni sínu og njóta betri friðar dregur verulega úr líkum á betrun í þeim tilvikum sem nafnið eitt útilokar full tækifæri til velgengni.
  4. Aðlögun að samfélaginu: Hvað þetta varðar liggja rökin gegn frumvarpinu að breytingum á mannanafnalögum í augum uppi. Frumvarpið virðist byggt á haturssjónarmiðum og að kenna frjálsan borgara við fortíð sína og afbrot. Breyting á nafni felur hins vegar greinilega í sér aðlögun að samfélaginu og þátttöku í því í stað útilokunar.

Mannréttindi barna

Þingið verður að gera sér grein fyrir því að flestir sakamenn eiga sér fjölskyldur og jafnvel börn. Mannréttindi barna eru mikilvægustu mannréttindi stjórnarskrárinnar og rýma í burtu öðrum réttindum sem talin eru í mannréttindakaflanum. Þetta hefur verið staðfest af Hæstarétti í máli nr. 58/2019. Í þeim tilvikum sem sakamaður á börn, barnabörn eða tengist barni fjölskylduböndum varðar frumvarpið hagsmuni viðkomandi barns eða barna. Þessi nálgun hefur oftsinnis verið sniðgengin við lagasetningu og af þeim sem taka ákvarðanir er varða börn ef dómstólar einir eru undanskildir. Með innleiðingu mannréttindakafla stjórnarskrár með stjórnskipunarlögum nr. 97/1995 veittu borgarar landsins stjórnvöldum þau fyrirmæli að gæta að hagsmunum barna í sérhverju tilviki sem mál kann að varða barn. Frumvarpið sem hér um ræðir er líklegt til að hafa smitáhrif og færa fordóma og jafnvel einelti inn í skólakerfi landsins og skapa þannig fórnarlömb á barnsaldri.

---

Frumvarpið er með þeim hætti að það getur í raun aldrei orðið að gildri lagasetningu. Það skortir lagaáskilnað þar sem það fer gegn stjórnskipunarlögum. Rökstuðningur fyrir fyrirhugaðri lagasetningu rúmast ekki innan þeirra forsenda sem mannréttindaákvæði stjórnarskrár byggjast á. Alþingi hefur ekki forræði á því að setja mannréttindum skerðingar með öðrum eða rýmri hætti en borgarar landsins festu í mannréttindakafla stjórnarskrár með stjórnskipunarlögum nr. 97/1995.

Ritað hinn 9. júní 2026

Kökur og mælingar

Vefurinn notar nauðsynlegar kökur fyrir grunnvirkni. Við munum aðeins virkja heimsóknarmælingar, til dæmis Google Analytics, ef þú samþykkir það. Lesa persónuverndar- og kökustefnu.